Alcoa Job - 50591124 | CareerArc
  Search for More Jobs
Get alerts for jobs like this Get jobs like this tweeted to you
Company: Alcoa
Location: Reyðarfjörður, Iceland
Career Level: Associate
Industries: Manufacturing, Engineering, Aerospace

Description

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri. Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum sérfræðingi í innkaupateymi fyrirtækisins. Innkaup á vörum og þjónustu eru mjög mikilvægur þáttur í rekstri álversins. Innkaupateymið heyrir undir innkaupasvið móðurfélagsins Alcoa Corporation og ber ábyrgð á útboðum, samningagerð, innkaupaferlum og innkaupastefnu Alcoa Fjarðaáls.

Verkefni og ábyrgð

  • Greining þarfa og kostnaðar
  • Útboð á vörum og þjónustu
  • Samningar við birgja og verktaka
  • Samskipti við beiðendur innkaupa
  • Útgáfa og eftirfylgni innkaupapantana
  • Þróun innkaupaferla og innkaupastefnu


Menntun, reynsla og hæfni

  • Viðskiptafræði, lögfræði eða önnur hagnýt háskólamenntun
  • Reynsla af innkaupum og samningagerð er æskileg
  • Færni í greiningu gagna og miðlun upplýsinga
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði
  • Teymishugsun og lipurð í samskiptum
  • Gott vald á íslensku og ensku

Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.

Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.

Nánari upplýsingar veitir Rakel Þráinsdóttir, innkaupastjóri. Sendið tölvupóst á rakel.thrainsdottir@alcoa.com

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og jafnréttislög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is.

Umsóknarfrestur er til og með miðvikudeginum 30. október.

Alcoa Fjarðaál is looking for a skilled specialist to join our procurement team. Procurement of products and services is a vital aspect of the plant's operations. The procurement team is a part of the procurement department of Alcoa Corporation and is responsible for managing tenders, contracts, procurement processes, and the procurement policy of Alcoa Fjarðaál.

Roles and Responsibilities

  • Analyzing needs and costs
  • Conducting tenders for products and services
  • Managing contracts with suppliers and contractors
  • Communicating with purchase requests
  • Issuing and tracking purchase orders
  • Developing procurement processes and strategies

Education, experience, and qualifications

  • Degree in business, law, or a related field
  • Preferred experience in procurement and negotiation
  • Proficiency in data analysis and information sharing
  • Strong organizational skills, initiative, and independence
  • Ability to work well in a team and communicate effectively
  • Proficient in Icelandic and English

Alcoa Fjarðaál is a large and vibrant workplace that operates around the clock. We work together to create export value in a safe and responsible manner, 24 hours a day, every day of the year. Alcoa Fjarðaál offers competitive wages, manageable work schedules, and excellent staff facilities. Safety and health are always our top priorities, and we provide ample opportunities for training, education, and professional development.

Alcoa's values are integrity, excellence, care, and courage.

More information is available from Rakel Þráinsdóttir, procurement manager, by e-mail at rakel.thrainsdottir@alcoa.com .

Following Alcoa Fjarðaál's Equal Employment Opportunity Policy and the Icelandic Gender Equality Act No. 150/2020, individuals of all genders are encouraged to apply. 

For applications, please refer to www.alcoa.is

The application deadline is up to and including, October 30th.

Um starfsstöðina

Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði er eitt nútímalegasta og tæknivæddasta álver í heimi, og það er til fyrirmyndar hvað varðar umhverfisvernd. Álver Fjarðaáls er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári. Starfsmenn okkar vinna saman að því að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu og fjölskylduvænt vinnuumhverfi með áherslu á náið samstarf við nærsamfélagið og hagsmunaaðila.

Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í.

Þetta er staður þar sem þú hefur vald til að gera þitt besta, vera þú sjálf/ur sjálf og upplifa sanna tilfinningu fyrir því að tilheyra. Slástu í hópinn og mótaðu starfsferil þinn með okkur!

Vinnan þín. Veröldin þín. Mótaðu þau til betri vegar.


 Apply on company website